Make your own free website on Tripod.com


júní 5, 2004

Enn ein"kvikmyndin" af Cesari er komin hér. Þessi er reyndar svolítið blurrí en sýnir samt Cesar ráðast á myndavélina! :D

apríl 24, 2004

Loksins loksins!
...eru komnar nýjar myndir af Cesari! Vonandi bætast svo fleiri í hópinn í framtíðinni. Sumar myndirnar gætu verið svolítið "fuzzy" og úr fókus. Það er fyrst og fremst vegna þess að myndavélin sem ég á er drasl *sigh* og vegna þess að fuglinn vill ekki alltaf vera kyrr! Njótið vel!

janúar 26, 2004

Ætla bara að láta vita að Cesar er byrjaður að missa fjaðrirnar. Vonandi verður hann þá fleygur bráðum! :D

desember 29, 2003

Hér er svo kvikmynda "debut-ið" hans Cesars! Þetta er u.þ.b. 1.3 mb og það þarf QuickTime til að sjá þetta!

september 20, 2003

Þá koma loks fréttir af Cesari. Það hefur svo sem ekkert mikilvægt gerst síðasta mánuðin (úps ég gleymdi að skrifa...:$) en hann er þó loksins farinn að borða og drekka sjálfur. Hann er líka farinn að verða duglegur við að nota fuglabaðið sitt og það sem honum finnst skemmtilegast að gera er að kroppa klósettpappír og leika með boltann sinn. Og honum finnst líka rosa gaman að leika sér með klósettpappírs rúlluna.

Nýjasta sportið er að skríða í gegnum klósettrúlluna! Svo er hann Cesar orðinn mjög duglegur að fljúga þó að hann sé stundum svolítið smeikur við að fara af stað. Fleiri fréttir seinna.

ágúst 18, 2003

Úff! Where to begin.....
Við Cesar fórum á ástargaukasamkomu á fimmtudaginn. Það var rosagaman, þó svo að Cesar hafi verið soldið feiminn. Hann vildi ekkert tala við hina fuglana. Þarna voru líka tveir sólpáfar (mig langar svo í solleiðis) og nokkrir amazónar. Svaka stuð. Við erum ennþá að handfóðra greyið litla, förum að hætta því bráðum. Svo þurfum við að fara með Cesar til dýralæknis, hann virðist ekki hafa tilfinningu í einn tánni sinni. Ekki gott. Hún beyglast alltaf undir þegar hann stendur á putta eða grein. Annars er allt gott að frétta úr gæludýrahorninu. Cesari finnst best að kúra hjá okkur, smeygir sér alltaf innundir peysur og skyrtur. Svaka krúttí.

ágúst 8, 2003

Ég er svooo stolt! Cesar er búinn að læra að borða sjálfur úr matardallinum sínum!!! Og hann skilur "upp,upp" skipunina! (þá segir maður upp og setur fingur undir bringuna á honum þegar maður vill fá að halda á honum!!) OG hann er farinn að kúka eftir skipunum. Við reyndar þurftum ekkert að kenna honum það, hann virtis alveg hafa það á hreinu. Gruna hann reyndar um að kúka þegar við skipum honum þó að hann þurfi þess ekkert bara til að halda okkur ánægðum! Krúttið!